Má ég fá þennan í jólasokkinn minn í ár
Fór í bíó í dag, á DON, með Shah Rukh Khan. Þetta er Bollywood mynd og spennumynd í þokkabót. Verð að segja það að um leið og ég sé manninn þá fer ég að slefa, og um leið og hann fer að dilla bossanum þá er ég í sjöunda himni. Var einmitt að velta því fyrir mér að það er eins gott að það er ekki verið að fylgjast með viðbrögðum áhorfenda á myndum í bíóhúsum, því að ég var með fáránlegasta svip ever á mér þegar ég horfði á hann. Hann er meira að segja sexy þegar hann er að leika óþokka. Getur einhver útvegað mér hann í jólagjöf, það væri gjöf sem huhuhu, yrði ekki sett fljótlega á hilluna heldur vel huhummm ... notuð. Ég get endalaust horft á hann. Ég get svarið það að allt við hann er sexy, jafnvel þegar hann er í ömurlegum gegnsæum Bollywood skyrtum. Take me, I'm yours, Shah Rukh.
